Um Vefbókasafnið   Nýtt efni   Erlendar leitarvélar   Barnasíða   Bækur og móðurmál  
 Efnisorð:   A | Á | B | C | D | E | É | F | G | H | I | Í | J | K | L | M | N | O | Ó | P | Q | R | S | T | U | Ú | V | W | X | Y | Ý | Z | Þ | Æ | Ö | annað 
BÆKUR OG MÓÐURMÁL
  
BÆKUR OG MÓÐURMÁL

Samstarfsverkefni um að safna, skrá og dreifa bókum á erlendum málum til grunn- og framhaldsskólanema með annað móðurmál en íslensku.

Átt þú bækur fyrir börn og unglinga á rússnesku, tagalog, portúgölsku, litháísku, víetnömsku, ensku, serbísku, króatísku, albönsku, pólsku eða tælensku?
Ef þú vilt gefa þessar bækur, vinsamlegast snúðu þér til næsta almenningsbókasafns og munu starfsmenn safnsins sjá um að koma bókunum til þeirra sem á þeim þurfa að halda.

Eftirtalin almenningsbókasöfn eru þátttakendur í Bækur og móðurmál og hafa nokkur þeirra þegar fengið úthlutað tungumáli til að sjá um.

Amtsbókasafnið á Akureyri - albanska
Amtsbókasafnið í Stykkishólmi
Borgarbókasafn
Bókasafn Álftaness
Bókasafn Fjarðarbyggðar
Bókasafn Garðabæjar - portúgalska
Bókasafn Grundafjarðar
Bókasafn Hafnarfjarðar - litháíska
Bókasafn Kópavogs - rússneska (safnar einnig bókum á lettnesku)
Bókasafn Mosfellsbæjar - víetnamska
Bókasafn Norræna hússins
Bókasafn Ölfuss - tælenska
Bókasafn Öxarfjarðar
Bókasafn Reykjanesbæjar - ENSKA
Bókasafn Seltjarnarness - tagalog
Bókasafn Vestmannaeyja - SPÆNSKA
Bæjar- og héraðsbókasafnið á Ísafirði - KRÓATÍSKA
Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi - PÓLSKA
Héraðsbókasafn Skagfirðinga
Héraðsbókasafn Rangæinga
Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Bækur og móðurmál er samstarfverkefni sem felur meðal annars í sér að safna, skrá og dreifa bókum á erlendum málum til barna og unglinga á Íslandi með annað móðurmál en íslensku. Markmiðið er að koma til móts við þarfir þeirra fyrir fjölbreytt efni til náms og afþreyingar.

Aðkoma almenningsbókasafna að verkefninu felst í:
Að safna bókum á mörgum tungumálum
Að skrá, geyma og dreifa bókunum
Að mynda móðurstöðvar fyrir bækur á ákveðnum tungumálum
Að taka á móti bókagjöfum
Að vinna með skólasöfnum

Verkefninu er nú formlega lokið og lauk með því að safna krækjum af Netinu sem hentað gætu nemendum í grunn- og framhaldsskólum. Félagar í samtökunum Móðurmál unnu verkið og styrkurinn sem verkefnið Bækur og móðurmál hlaut frá Velferðarsjóði barna var nýttur til þess. Þessi krækjusöfn eru vistuð á Fjölmenningarvef Breiðholtsskóla.


Logos Children's Library

International Children's Digital Library


Annað:
Nýbúavefur Grunnskólans í Þorlákshöfn
Þýska bókasafnið
Bókasafn Hafnarfjarðar tók við safninu af Hollvinasamtökum Þýska bókasafnsins. Þar eru yfir 6.000 safngögn, bæði bækur, myndbönd, DVD og hljóðbækur fyrir alla aldurshópa.
 

Til baka
 
 
Leitað eftir:
Öllu
Titli
Efnisorði
Engin stýfing
(Til dæmis: tón finnur tónverk og tónlist)
Ítarleg leit
Yfirflokkar:
Alfræði, bókasöfn, tölvur
Raunvísindi
Heimspeki, sálfræði, siðfræði
Tækni, læknisfræði, heimilið
Trúarbrögð
Listir og Íþróttir
Samfélagsgreinar
Bókmenntir
Tungumál
Landafræði og saga
 
  © 2000 Félag um vefbókasafn
   Ritstjóri